Einfaldari leið að sumarhúsi


Tíminn líður hratt á gervihnattaröld
Álag í vinnu. Sækja og skutla. Foreldrafundir. Íþróttamót. Barnaafmæli. Jólatónleikar. Dagatalið nú til dags á það til að fyllast hratt og skipulag daglegs lífs getur stundum orðið ansi flókið.
Vesturhlíðarsvæðið er hugarfóstur tveggja útivistarfjölskyldna sem upplifa að tíminn sé af skornum skammti og að honum eigi ekki að sóa. Í öllu því ati sem nútímalíf hefur upp á að bjóða fannst okkur mikilvægt að geta átt griðastað fjölskyldunnar þar sem hægt væri að komast í burtu frá hraða hversdagslífsins og hægja á tilverunni.
Hugmyndafræði Vesturhlíðarbyggðar snýst um að einfalda leiðina að sumarhúsi og létta kaupendum það umstang sem fylgir framkvæmdinni.
Margþætt framkvæmd sem krefst aðkomu fjölda aðila
Að reisa sumarhús er margþætt framkvæmd sem krefst oft aðkomu fjölda aðila. Áður en bygging sjálf hefst þarf gjarnan að leggja lagnir að byggingarreit, koma fyrir rotþró og ráðast í jarðvegsvinnu fyrir púða, skurði og bílaplan. Þar með fylgja samskipti við verktaka, tilboðsöflun og umsjón með framkvæmdum, allt áður en sjálf húsbyggingin hefst.


Einfaldari framkvæmd fyrir kaupanda
Vesturhlíðarbyggð er sett upp með það að markmiði að einfalda þetta ferli fyrir kaupandann. Með því að byggja upp innviði, skipuleggja framkvæmdina og bjóða mismunandi afhendingarmáta þarf kaupandi síður að standa sjálfur í samskiptum við fjölda aðila, tilboðsöflun og framkvæmdastýringu. Við sjáum um framkvæmdina frá upphafi til enda, á meðan kaupandi getur einbeitt sér að þeim ákvörðunum sem skipta mestu máli. Þannig verður leiðin að sumarhúsi einfaldari, skýrari og mun þægilegri fyrir kaupandann.