
SUMARHÚS / Möguleiki 2
Stærra sumarhús Vesturhlíðar
Upplýsingar
Stærra sumarhús Vesturhlíðar er hannað af Bjarka Gunnari Halldórssyni, arkitekt hjá Stúdíó Jæja. Húsið er 127,0 fermetrar og ætlað þeim sem vilja stærra sumarhús með meira svigrúmi til samveru, gistingar og lengri dvalar.
Rúmgott alrými myndar miðju hússins og skapar góða aðstöðu fyrir daglega notkun og samveru. Hönnunin gerir ráð fyrir fjórum svefnherbergjum í aðskildri álmu, stærra baðherbergi og meiri sveigjanleika í nýtingu hússins, hvort sem það er notað af stærri fjölskyldu eða tekið á móti fleiri gestum. Endanlegt efnisval innandyra er í höndum kaupanda og því gefst svigrúm til að sérsníða innra útlit hússins að eigin áherslum.
Helstu atriði

127,0 fermetrar

4 svefnherbergi

Rúmgott alrými og stærra baðherbergi
Teikningar



Aðbúnaður & skipulag
1.Rúmgott alrými fyrir samveru
2.Svefnpláss sem hentar stærri hópum
3.Meira svigrúm í daglegri notkun
