Lagalegur fyrirvari
Upplýsingar á þessari síðu og í tengdu kynningarefni eru settar fram í upplýsingaskyni og fela ekki í sér bindandi tilboð eða loforð af hálfu Vesturhlíðarbyggðar ehf.
Lýsingar á lóðum, sumarhúsum, afhendingarmátum, teikningum, tölvugerðum myndum, 360° sýn, stærðum, byggingarmagni, verði, frágangi og öðrum atriðum eru leiðbeinandi og geta tekið breytingum án fyrirvara. Sama á við um upplýsingar um innviði, staðsetningu byggingarreita, skipulag, efnisval, framkvæmdatíma og aðra þætti sem kunna að hafa áhrif á endanlega útfærslu.
Myndir, teikningar og önnur sjónræn framsetning eru ætlaðar til að gefa almenna mynd af svæðinu og mögulegri útfærslu, en endanleg niðurstaða ræðst af hönnun, leyfum, samningum og öðrum forsendum hverju sinni.
Endanleg réttindi og skyldur aðila ráðast eingöngu af undirrituðum samningum og þeim gögnum og skilmálum sem þar koma fram.