
Sérhannað sumarhús
Upplýsingar
Fyrir þau sem vilja fara eigin leið er í boði að láta hanna sumarhús frá grunni á lóð í Vesturhlíð. Kaupandi vinnur þá með arkitekt Vesturhlíðarbyggðar, Bjarka Gunnari Halldórssyni hjá Stúdíó Jæja að því að móta hús sem tekur mið af þörfum, notkun, smekk og þeim staðháttum sem lóðin býður upp á. Bjarki leggur ríka áherslu á að mynda tengingu milli innra rýmis byggingar og altumlykjandi náttúru sem er grunnur að samveru og vellíðan fólks; staður til að bregða á leik og njóta stundarinnar.
Með þessari leið skapast meira svigrúm til að laga skipulag, rýmaskipan, efnisval og heildaryfirbragð að því sem hentar hverjum kaupanda best. Húsið er þannig ekki bundið við fyrirfram ákveðna grunnlausn, heldur unnið sérstaklega með tilliti til útsýnis, birtu, aðkomu og því hlutverki sem húsið á að gegna. Þessi kostur hentar þeim sem vilja sumarhús sem er sniðið að eigin forsendum fremur en staðlaðri útfærslu.
Helstu atriði

Hannað í samráði við arkitekt

Sérsniðið skipulag

Efnisval að vali kaupanda
Aðbúnaður & skipulag
