
Úlfljótsvatn
Úlfljótsvatn er í örstuttri fjarlægð frá Vesturhlíð og býður upp á fjölbreytta útivist í fallegu umhverfi. Þar er bæði hægt að njóta gönguferða, vatnaafþreyingar og fjölskylduvænna útiverustunda allt árið um kring.

ALLT FRÁ LÓÐ AÐ LYKLI

Vesturhlíð er sumarhúsabyggð rétt sunnan við Úlfljótsvatn einungis 70km frá miðbæ Reykjavíkur. Kaupendur geta valið afhendingarleið eins og þeim hentar, allt eftir framkvæmdagleði og tímalínu.
Þeim kaupendum sem vilja sjá um allar framkvæmdir sjálfir stendur til boða að kaupa auða sumarhúsalóð. Þeir kaupendur sem vilja hins vegar losna við það umstang og flækjustig sem fylgir sumarhúsaframkvæmdum geta látið Vesturhlíðarbyggð sjá um slíkar framkvæmdir og keypt ýmist fullfrágengna lóð tilbúna til byggingar á eða jafnvel fullgert sumarhús.
Vesturhlíðarbyggð vinnur með kaupendum að því að skila þeim frágangi sem hentar best hverju sinni með sem einföldustum hætti. Boðið er upp á bæði fyrirframhannaðar lausnir og sérhönnun að ósk kaupanda.
Fyrir suma kaupendur felst aukið verðmæti einnig í þeim sveigjanleika sem fylgir lóðunum, þar sem gildandi deiliskipulag heimilar útleigu frístundahúsa á svæðinu, með þeim skilmálum sem þar gilda.


Á svæðinu eru 92 skipulagðar eignarlóðir, hver með sitt sérkenni, staðsettar til að nýta útsýni og náttúrulegt umhverfi á sem bestan hátt. Á kortinu er hægt að sjá nánari upplýsingar um lóðir og 360° sýn frá byggingarreit. Í fyrsta fasa uppbyggingar svæðisins er boðið upp á þær lóðir sem eru auðkenndar til sölu.
Kaupendur geta valið um þrjá möguleika: auða eignarlóð, fullfrágengna eignarlóð tilbúna til byggingar, eða fullgert sumarhús. Veldu það frágangsstig sem þér hentar.
Auð eignarlóð hentar þeim sem vilja hafa fulla stjórn á framkvæmdinni frá upphafi. Lóðin er deiliskipulögð fyrir sumarhús og kalt vatn og rafmagn liggja að lóðarmörkum, en kaupandi sér sjálfur um frágang lóðar og allan undirbúning byggingarframkvæmda. Við kaup á auðri lóð greiðast sérstaklega auk kaupverðs tengigjöld vegna rafmagns og vatnsveitu. Tengigjald vegna rafmagns greiðist við kaup, en Vesturhlíðarbyggð hefur þegar greitt tengigjaldið til RARIK og er spenna á rafmagnskassa við lóðina. Tengigjald til Vatnsveitu Vesturhlíðar, einingar innan Vesturhlíðarbyggðar sem heldur utan um rekstur vatns á svæðinu, greiðist við tengingu við kalt vatn.
Fullfrágengin eignarlóð hentar þeim sem vilja sleppa undirbúningsvinnunni en sjá sjálfir um húsbygginguna. Búið er að ganga frá púða undir sumarhús með tilheyrandi jarðvegsskiptum, leggja kalt vatn og rafmagn að púða, koma fyrir rotþró og vinna aðkomu og bílaplan. Lóðin er því tilbúin til byggingar, en kaupandi sér sjálfur um sjálfa húsframkvæmdina. Þegar keypt er fullfrágengin lóð eru tengigjöld rafmagns og vatnsveitu innifalin.
Fullbúið sumarhús hentar þeim sem vilja sem einfaldasta leið að sumarhúsi. Kaupandi velur húsgerð, efni og innri frágang, en Vesturhlíðarbyggð sér um öflun byggingarleyfis og hefur umsjón með uppbyggingu og frágangi. Niðurstaðan er fullbúið sumarhús sem kaupandi fær afhent tilbúið til notkunar.
Í kringum Vesturhlíð opnast heimur af upplifunum. Hvort sem þú sækist eftir kyrrð náttúrunnar eða virkri afþreyingu, þá er allt innan seilingar – fullkomið jafnvægi milli slökunar og ævintýra.

Úlfljótsvatn er í örstuttri fjarlægð frá Vesturhlíð og býður upp á fjölbreytta útivist í fallegu umhverfi. Þar er bæði hægt að njóta gönguferða, vatnaafþreyingar og fjölskylduvænna útiverustunda allt árið um kring.

Kerið er ein af náttúruperlum Suðurlands og í stuttri akstursfjarlægð frá Vesturhlíð. Eldgígurinn með rauðleitum hlíðum og kyrru blágrænu vatni er bæði eftirminnilegur viðkomustaður og fallegt dæmi um sérstöðu landslagsins á svæðinu.

Selfoss er helsta þjónustumiðstöð svæðisins og veitir allt það sem þarf til að gera dvölina þægilega og einfalda. Þar er að finna fjölbreytt úrval verslana, veitingastaða, kaffihúsa og aðra daglega þjónustu í stuttri fjarlægð frá Vesturhlíð.

Reykjadalur er vinsælt útivistarsvæði sameinar gönguleiðir, jarðhita og náttúrulega heit böð. Fyrir þá sem hafa áhuga á að njóta íslenskrar náttúru í grennd við Vesturhlíð er Reykjadalur mjög góður kostur.

Þingvellir sameina einstaka náttúru, jarðsögu og einn mikilvægasta sögustað landsins. Þar má njóta stórbrotins landslags, gönguleiða og gestastofu sem gerir heimsóknina bæði fróðlega og eftirminnilega.

Friðheimar bjóða upp á sérstaka og eftirminnilega matarupplifun í gróðurhúsum þar sem tómatar eru ræktaðir allt árið. Staðurinn hefur orðið einn af þekktari viðkomustöðum á svæðinu og hentar vel bæði til notalegrar dagsferðar og sem hluti af upplifun í nágrenni Vesturhlíðar.